Miðasala er á midi.is og við innganginn eftir kl 19 tónleikadagana
Stórtónleikar Þriðjudaginn 11. apríl kl. 20.00. KK Band. Hið ástsæla KK band, KK, Þorleifur Guðjónsson og Kormákur Geirharðsson og spila lögin sem allir elska, bæði sín og annarra, m.a. af plötunum Lucky One, Bein leið og Hótel Föröyar. Þorleifur Gaukur og Berklee Blues Band. Fyrir hlé verður Berklee Blues Band í aðalhlutverki Þorleifur Gaukur munnhörpuleikari kemur með félaga sína úr hinum virta Berklee tónlistarskóla í Boston; Hunter Burgamy á gítar, Colescott Rubin á bassa og Sam Palermo á trommur. Þetta eru strákarnir sem gerðu allt vitlaust á síðustu hátíð. Blúsaðasta band Músíktilrauna. Það er ekki ljóst hvaða hljómsveit verður valið Blúsaðasta bandið á Músíktilraunum 2017, en það er öruggt að sveitin hefur leikinn á fyrstu stórtónleikum Blúshátíðarinnar.
Stórtónleikar miðvikudaginn 12. apríl kl. 20.00. Noah Wotherspoon and the Blue Ice Band. Noah Wotherspoon var valinn besti gítarleikarinn á International Blues Challenge árið 2015 og á Blúshátíðinni sjáið þið hvers vegna!. Hann er stókostlegur á sviði og honum halda engin bönd. Með honum verða Róbert Þórhallsson á bassa, Birgir Baldursson á trommur, Guðmundur Pétursson á gítar og Davíð Þór Jónsson á Hammond. Það má ekki missa af þessu!!! Göran Svenningsson. Frá Gautaborg í Svíþjóð kemur Göran Svenningsson gítarleikari sem hefur spilað blús frá unga aldri með helstu blúsmönnum Svíþjóðar og fjölda bandarískra blúsmanna. Með honum spila Erik Qvick á trommur og Þorgrímur Jónsson á bassa.
Stórtónleikar fimmtudaginn 13. apríl kl. 20.00. – Lokakvöld Blúsmenn Andreu. Blúsmenn hinnar óviðjafnanlegu Andreu Gylfadóttur eru Guðmundur Pétursson á gítar, Haraldur Þorsteinsson á bassa, Jóhann Hjörleifsson á trommur og Einar Rúnarsson á Hammond. Algjörlega pottþétt band sem hreinlega getur ekki klikkað. Blúsbræðingur Fyrir hlé verður Blúsbræðingur þar sem undrabörnin Óskar Logi Ágústsson, Davíð Þór Jónsson, Magnús Jóhann og Ásgeir Óskarsson spila magnaðan blúsgjörning. Uncle John jr. Á lokakvöldi Blúshátíðar hefur Uncle John jr. leikinn og fer fimum höndum um kassagítarinn. Uncle John jr. hefur leik með kassagítarinn Dúndrandi stemning á Klúbbi Blúshátíðar á hótelinu eftir stórtónleika þar sem allt getur gerst.
Eins og undanfarin ár aðeins er tekin frá sæti fyrir matargesti VOX. Veitingahúsið VOX á Hilton Reykjavík Nordica ætlar að bjóða uppá sérstakan matseðil í tilefni Blúshátiðar. Matargestir VOX fá frátekin sæti á tónleikunum kl 20 um kvöldið. VOX restaurant / bistro – Hilton Reykjavik Nordica – Suðurlandsbraut 2 Sími: 444 5050 – vox@vox.is http://www.vox.is/