Spirituals, Sálmar bandarískra blökkumanna
Sú gríðarlega flóra tónlistar sem er til staðar í Bandaríkjunum í dag er að mestu leiti að þakka þeirri tónlistarhefð sem svartir þrælar höfðu með sér frá Afríku. Þrælasalar náðu sér í fórnarlömb vítt og breytt um Afríku. Fangarnir gátu ekki tekið neina hluti með sér en það sem þeir gátu tekið með sér var sú hefð og menning sem var þeim í blóð borinn.
Það var tónlistin sem styrkti og huggaði hina svörtu þræla í gegnum hina erfiðu og löngu þrautargöngu þrælahalds. Fólkið dansaði og söng og spilaði á hljóðfæri. Og þrátt fyrir að hinir hvítu litu ekki á hina svörtu þræla sem jafninga þá er ljóst að sú tónlistarhefð sem hinir svörtu afríkubúar tóku með sér til Ameríku hafði að endingu gríðarleg áhrif á alla tónlistarmenningu heimsins.
Sálmarnir eru hin eiginlega rót sem gospel-tónlist, blues, jazz og seinna rock og síðan öll dægurtónlist byggja á. Ber þar blúsinn einna hæst, enda voru sálmarnir fluttir á lokatónleikum Blúshátíðar 2005 þar sem Kammerkór Hafnarfjarðar, Deitra Farr og Andrea Gylfadóttir sungu.
Kammerkór Hafnarfjarðar ásamt Kristjönu Stefánsdóttur, söngkonu, Kjartani Valdemarssyni, píanóleikara, Kristni Snæ Agnarsyni, slagverksleikara og Jóni Rafnssyni, kontrabassaleikara verða með tónleika í Norðurljósasal Hörpu þar sem einungis verða fluttir sálmar bandarísku blökkumanna.
Tónleikarnir eru sunnudaginn 29. apríl kl. 16.00 og er hægt að kaupa miða á harpa.is
.