2004 – Magnús Eiríksson
Magnús Eiríksson var fyrsti heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur 2004. Hann er nánast óþarft að kynna en Blúskompaní hans hefur starfað síðan blússagan hófst á Íslandi og blúsinn aldrei langt undan í lögum hans.
2005 – Björgvin Gíslason
Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari afhenti honum viðurkenninguna og sagði meðal annars ” Oftast var ég að fara til þess að hlusta á goðið mitt sem brosti breitt með Gibson SG framan á vömbinni. Maður sogaði í sig hverja nótu af áfergju því aldrei klikkaði gítaristinn sem í mínum huga stóð samhliða þeim bestu erlendis. Sú skoðun mín hefur ekki breyst.Það var greinilegt hvert hann sótti efniviðinn í sólóin sem voru ættuð beint frá blúsnum enda sóttust þekktir blúsarar eins og Gatemouth Brown eftir nærveru hans seinna. Árum saman hefur einlægur blússpuni hans fengið hárin til þess að rísa á áheyrendum þegar hann hefur tekið þátt í blúskvöldum og blúshátíðum. Hver nóta kemur frá hjartanu og sama gildir um skoðanir hans á tilverunni. Hann gerir alltaf það sem hjartað býður honum þó svo að vitað sé að hann hagnist síður á því fjárhagslega eða á annan hátt. Hann er því blúsari af lífi og sál og gerir allt af tilfinningu og nákvæmni “
2006 – Andrea Gylfadóttir
Árið 2006 veitti Blúsfélag Reykjavíkur Andreu Gylfadóttir viðurkenningu og gerði að heiðursfélaga fyrir framlag sitt til blústónlistar á Íslandi. Andrea Jónsdóttir útvarpskona afhenti verðlaunin.
2007 – Kristján Kristjánsson
Blúsfélag Reykjavíkur sæmdi í dag tónlistarmanninn KK, Kristján Kristjánsson Blúsmann ársins, við setningu Blúshátíðar í Reykjavík 2007 á Nordica Hotel, en Blúsfélgaið er systurfélag Blúshátíðarinnar.KK hefur árum saman verið í fararbroddi í blústónlist á Íslandi, og sló í gegn með tónlist sinni í uppfærslu Leikfélags Reykjavíkur á Þrúgum reiðinnar eftir John Steinbeck á sínum tíma. KK hefur gefið út fjölmargar plötur með tónlist sinni og annarra á liðnum árum og átt í farsælu samstarfi við aðra listamenn, einkum Magnús Eiríksson, og systur sína Ellen Kristjánsdóttur. Fyrir tveim árum lék KK á Blúshátíð í Reykjavík með Svíþjóðarbandi sínu, The Grinders við mikinn fögnuð. Á síðasta ári gaf hann út plötuna Blús, sem hlaut einróma lof gagnrýnenda. KK kemur fram á Blúshátíð í ár.Blúshátíð í Reykjavík er nú haldin í fjórða sinn, en þeir sem áður hafa hlotið þessa heiðursnafnbót eru Magnús Eiríksson (2004), Björgvin Gíslason (2005) og Andrea Gylfadóttir (2006).
2008 – Ásgeir Óskarsson
Ásgeir Óskarsson trommuleikari hefur verið valinn heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur í ár. Þetta var tilkynnt við opnun Blúshátíðar í Reykjavík á Hilton Reykjavík Nordica. Með viðurkenningunni frá Blúsfélaginu fylgdi forláta Gretch trommusett af bestu gerð í þakklætisvott fyrir framlag til blústónlistarinnar. Ásgeir er einn virtasti trommari á Íslandi og hefur hann spilað með flestum stærstu hljómsveitum og tónlistarmönnum Íslands.
2009 – Pinetop Perkins
Pinetop Perkins er íslenskum blúsunnendum að góðu kunnur, hann spilaði um tíma með íslenskum blúsmönnum, Blue Ice Band (Vinir Dóra), í Chicago fyrir miðjan tíunda áratuginn, og spilaði einnig með þeim hér á landi. Hann hefur sjálfur sagt plötuna sem hann gaf út með Blue Ice Band Vinum Dóra, sína bestu. Sú plata er mikið fágæti platan hefur lengi verið uppseld og ófáanleg. Það má því segja að Pinetop Perkins sé guðfaðir blústónlistarinnar á Íslandi.
2010 – Deitra Farr
Deitra Farr hefur hlotið fjölda verðlauna og komið fram á blúshátíðum um allan heim. Hún kom hingað til lands árið 1992 og fór í tónleikaferð með Vinum Dóra og hljóðritaði með þeim lög á diskinn ” Mér líður vel” . Þá var hún ung og efnileg en nú er hún orðin ein af bestu blússöngkonum heims. Nánari upplýsingar um Deitru má finna á www.deitrafarr.com .
2011 – Guðmundur Pétursson
Guðmundur Pétursson var valinn heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur árið 2011. Guðmundur Pétursson er listamaður sem vart þarf að kynna, því árum saman hefur hann verið í metum sem einn besti gítarleikari landsins. 2008 sendi hann frá sér plötuna Ologies. Honum til halds og trausts þar eru m.a. Matthías Hemstock trommu- og slagverksleikari, Hrafnkell Orri Egilsson sellóleikari og Styrmir Hauksson hljóðhönnuður. Guðmundur semur alla tónlist sem er undir margvíslegum áhrifum úr heimi rokk, jazz, blús, kvikmynda-, heimstónlistar og óhefðbundinnar tónlistar.
2012 Pétur Tyrfingsson
Heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur árið 2012 er Pétur Tyrfingsson. Útnefning heiðursfélagans var kynnt við setningarathöfn Blúshátíðar sem fram fór í Kolaportinu
Pétur Tyrfingsson er vel að heiðrinum kominn en fáir hafa verið jafn ötulir og hann við að kynna og stuðla að uppgangi blústónlistarinnar á Íslandi. Í sex ár hélt Pétur úti vikulegum útvarpsþáttum um blús og eftir hann liggur fjöldi blaðagreina um sögu blústónlistarinnar, tónlistarmenn og fleira sem viðkemur tónlistarstefnunni.
Tregasveitin, hin goðsagnakennda hljómsveit Péturs, var mjög áberandi í blúslífi landsmanna fyrr á árum. Þar vakti Guðmundur, sonur Péturs, fyrst athygli en Guðmundur Pétursson varð heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur á síðasta ári.
Það er mikill heiður fyrir Blúshátíð í Reykjavík að kynna endurkomu Tregasveitarinnar á Blúshátíð 2012 og það verður forvitnilegt að heyra þá feðga Pétur Tyrfingsson og Guðmund Pétursson spila saman eftir öll þessi ár.
2013 – Halldór Bragason
Halldór Bragason, sem er upphafsmaður Blúshátíðarinnar, hefur unnið ötullega að vexti og viðgangi tónlistarinnar á Íslandi í árartugi. Hann hefur komið að blúshátíðum víða um land, staðið fyrir námskeiðum og kennt fjölda manns að njóta og spila blús. Halldór hefur spilað og hljóðritað með mörgum virtustu blústónlistarmönnum samtímans, bæði á Blúshátíð í Reykjavík og erlendis, ýmist einn eða með hljómsveitunum sínum Vinum Dóra og The Blue Ice Band.
2014 var Jón Ólafsson bassaleikari útnefndur heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur fyrir framlag sitt blústónlistarinnar á Íslandi.
Blústónlistinn hefur fylgt Jóni allan hans tónlistarferil. Hann vakti fyrst athygli sem bassaleikari Tatara, þá 16 ára gamall. Síðan hefur hann spilað með mörgum þekktustu og vinsælustu hljómsveitum landsins s.s. Pelican, Póker, Start og Vinum Dóra.
2015 – Sigurður Sigurðsson
2015 var Sigurður Sigurðsson munnhörpuleikari og söngvari útnefndur heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur. Sigurður hefur verið áberandi í íslenskri blústónlist áratugum saman, hann var söngvari og blés í munnhörpu með hljómsveitinni Kentár (Centaur) sem stofnuð var árið 1982. Kentár var öflug tónleikasveit sem kom með ferska strauma inn í blúslíf landsmanna. Sigurður er einnig meðlimur í Tregasveitinni, þeirri goðsagnakenndu blúshljómsveit sem hefur starfað frá 1988, og hefur spilað með fjöldi hljómsveita og tónlistarmanna, bæði á tónleikum og plötum. Þar má nefna plötur Woofer, Árna Johnsen, Ásgeirs Óskarssonar, Sálararinnar hans Jóns míns, Rikshaw, Mannakorna, Páls Óskars, Pláhnetunnar, Harðar Torfa, Stefáns Hilmarssonar, Stjórnarinnar, Jóhanns Helgasonar og Geirmundar Valtýssonar, auk margra annarra. Sigurður hefur sjálfur gefið út nokkrar sólóplötur.
2016 – Lincoln T Beauchamp Jr. aka Chicago Beau
Bandaríski tónlistamaðurinn og rithöfundurinn Chicago Beau var útnefndur heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur við fjölmenna setningu Blúshátíðar 2016 á Skólavörðustígnum.
Chicago Beau var tíður gestur hérlendis á árunum 1991 til 1995 og hafði veruleg áhrif á íslenskt blúslíf. Hann kom á sterku menningarsambandi milli íslenskra og bandarískra blústónlistarmanna og vann ötullega að útbreiðslu blústónlistarinnar og kynningu á íslenskum blústónlistarmönnum erlendis. Um tíma ferðaðist hann hljómsveitinni Vinum Dóra og kom fram með hljómsveitinni á fjölda tónleika bæði í Evrópu og Bandaríkjunum.
2017 – Birgir Baldursson
Trommuleikarinn Birgir Baldursson var kjörin heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur við setningu Blúshátíðar 2017. Blúshátíð 2017 var sett á Skólavörðustígnum þar sem tónlistarmenn buðu upp á sannkallaða Blúsveislu þar sem tónlistin ómaði. Boðið var upp á grillmat og félagar í Krúserklúbbnum viðruðu bíla sýna og höfðu þá til sýnis. Birgir Baldursson, sem nú ber nafnbótina blúsmaður ársins, var heltekinn af trommuleik strax fjögurra ára gamall og og hefur slegið taktinn síðan. Fyrst urðu húsgögnin á heimili hans fyrir barðinu á honum, einnig lampar og ljós, en fljótlega fékk hann trommur og fór að spila með skólahljómsveit Kópavogs 10 ára gamall. Hann hefur spilað með hjómsveitum á borð við S.H. Draumum, Bless, Sálinni Hans Jóns míns, Mannakornum, Kombóinu, Blúsmönnum Andreu, Unun, Dr. Gunna, Blue Ice Band mörgum fleirum. Hann hefur leikið inná tugi hljómplatna, unnið við kvikmyndatónlist, í leikhúsum og við söngleiki, svo eitthvað sé nefnd. Birgir hefur verið einn af merkisberum blústónlistarinnar hérlendis undanfarin ár
2018 – Tryggvi Hübner
Gítarleikarinn Tryggvi Hübner var útnefndur heiðursfélagið Blúsfélags Reykjavíkur við setningu Blúshátíðar í dag, laugardaginn 24. mars 2018..
Tryggvi hefur um árabil verið ein af burðarstoðunum í íslenskri blústónlist og leiðandi í íslensku tónlistarlífi bæði sem eftirsóttur gítarleikari og virtur gítarkennari.Með hljómsveita sem Tryggvi hefur
spilað með með má nefna Cabaret, Deildarbungubræður, EIK, Stofnþel og Súld. Tryggvi hefur komið við sögu á u.þ.b. 200 hljómplötum með fjölbreyttri tónlist. Þar má nefna, nefna plötur með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Áhöfninni á Halastjörnunni, EIK, Mary Poppins og Súld, og plötur söngvara á borð við Bubba, Megas, Rúnar Júlíusson, Björgvin Halldórsson og Fabulu.Tryggvi hefur samið u.þ.b. 25 lög sem hafa verið gefin út á íslenskum hljómplötum og af sólóplötu hans Betri ferð sem kom út 1995 hafa tvö lög verið gefin út í 47 löndum af útgáfufyrirtækinu Parry/Promusic í USA.Tryggvi hóf nám í fiðluleik við Tónlistarskóla Kópavogs árið 1963, þá 6 ára en árið 1969 hóf hann nám í gítarleik og hefur ekki lagt það hljóðfæri frá sér síðan. Tryggvi stofnaði Gítarskóla Íslands ásamt Torfa Ólafssyni árið 1993
2019 – Róbert Þórhallsson
Bassaleikarinn Róbert Þórhallsson var útnefndur heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur við setningu Blúshátíðar í dag, laugardaginn 13. apríl. Róbert er einn af okkar allra bestu og eftirsóttustu rafbassaleikurum. Hann hefur verið órjúfanlegur hluti íslenska blússamfélagsins um árabil og hefur meðal annars spilað með húsbandinu, Blue Ice Band, á hverri einustu Blúshátíð frá árinu 2006. Þar hefur hann spilað með öllum erlendu stórstjörnunum sem hafa komið fram á hátíðinni og stjórnað samspilinu af smekkvísi og fagmennsku.
Róbert Þórhallsson er sprenglærður tónlistarmaður. Hann byrjaði ungur að blása í trompet í tónlistarskóla Húsavíkur en skipti yfir í bassann 15 ára gamall. Hann brautskráðist frá Tónlistarskóla FÍH árið 1997. Haustið 1998 hóf Róbert nám í Conservatorium van Amsterdam þar lauk hann kennaranámi og marstesnámi í bassaleik. Hann brautskráðist þaðan vorið 2003 með láði, fyrstur nemanda í Jass- og hryndeild skólans.
2022 – Davíð Þór Jónsson
Árið 2022 var Davíð Þór Jónsson útnefndur heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur fyrir framlag sitt til íslenskrar blústónlistar, bæði sem flytjandi og stuðningsmaður blúsmenningarinnar. Útnefningin staðfestir mikilvægi hans í íslensku blússenunni og virðingu sem hann nýtur meðal tónlistarmanna og blúsaðdáenda. Davíð Þór er tónlistarmaður, píanóleikari og tónskáld, þekktur fyrir fjölbreyttan feril sinn sem spannar djass, blús, klassíska tónlist og tilraunakennda tónsmíði. Hann hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi í áratugi og er sérstaklega kunnur fyrir kraftmikinn og tilfinningaríkan píanóleik. Í tengslum við blústónlist hefur Davíð Þór oft leikið með íslenskum og erlendum blústónlistarmönnum og er þekktur fyrir djúpan skilning sinn á blústónmálinu. Hann hefur verið fastagestur á blústónlistarviðburðum á Íslandi og lagt sitt af mörkum til að kynna og viðhalda blúshefðinni í landinu.
2023 – Ragnheiður Gröndal
Ragnheiður Gröndal er íslensk söngkona og lagahöfundur, þekkt fyrir fjölbreyttan feril sinn sem spannar djass, þjóðlagatónlist og blús. Hún hefur gefið út fjölda platna og er ein af ástsælustu söngkonum landsins, þekkt fyrir heillandi rödd sína og túlkunarhæfni.
Ragnheiður hefur oft flutt blústónlist og blúsinn hefur verið mikilvægur hluti af hennar listræna ferðalagi. Hún hefur túlkað klassísk blús- og djasslög á sinn einstaka hátt og unnið með mörgum virtum tónlistarmönnum innan blússenunnar.
Árið 2023 var hún útnefnd heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur fyrir framlag sitt til íslenskrar blústónlistar. Viðurkenningin endurspeglar áhrif hennar á blústónlistina og hennar einstaka hæfileika til að flytja tilfinningaríkan og sálrænan blús.
2024 – Óskar Logi Ágústsson
Óskar Logi Ágústsson er íslenskur gítarleikari og söngvari, þekktastur sem stofnandi og aðalhugmyndasmiður rokksveitarinnar The Vintage Caravan. Hann hefur skipað sér í fremstu röð íslenskra rokktónlistarmanna og er virtur fyrir einstakan gítarstíl sinn, sem sækir innblástur í klassískt blúsrokk og sálartónlist.
Þrátt fyrir að vera mest þekktur fyrir harðara rokk hefur Óskar Logi alltaf haft sterka tengingu við blústónlist, sem er grunnurinn að spilamennsku hans. Hann hefur oft leikið blús í ýmsum samhengum og er virtur fyrir skilning sinn á blúshefðinni.
Árið 2024 var hann útnefndur heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur fyrir framlag sitt til íslenskrar blústónlistar, bæði sem flytjandi og áhrifavaldur innan tónlistarsenunnar. Viðurkenningin undirstrikar mikilvægi hans í að viðhalda og þróa blúsinn innan íslensks tónlistarlífs.