Blúshátíð í Reykjavík 2013 verður haldin 23. til 28. mars. Aðalgestir hátíðarinnar í ár verða hjónin Lucky og Tamara Peterson og goðsögnin Guitar Shorty.
Lucky Peterson er ein helsta stórstjarna blússins um þessar mundir og Tamara Peterson er einstaklega fær blússöngkona með hjartað á réttum stað. Guitar Shorty er lifandi goðsögn, blúsmaður af gamla skólanum.
Þrennir stórtónleikar verða á Hilton Reykjavík Nordica, þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöld, skírdag. Klúbbur Blúshátíðar er starfræktur á hótelinu eftir tónleika og þar getur allt gerst.
Miðasala http://midi.is/tonleikar/1/7476
Klúbbur Blúshátíðar er starfræktur á hótelinu eftir tónleika og þar getur allt gerst.
Þriðjudag 26. mars kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica
Lucky og Tamara Peterson. Þessi stórkostlega blúshjón fara létt með að trylla gesti Blúshátíðar í Reykjavík í ár. Lucky hefur blúsinn í blóðinu og sönginn í hjartanu gaf út sína fyrstu plötu fimm ára gamall og hefur síðan ekki slegið slöku við. Tamara er blússöngkona eins og þær gerast bestar! Þau koma fram með The Blue Ice Band. Á tónleikunum kemur einnig sveitin Skúli Mennski og Þung byrði sem nýverið gáfu út blúsplötu auk annara efnilegra blúsmanna og blúskvenna.
Miðvikudag 27. mars kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica
Guitar Shorty er lifandi goðsögn. Hann er fyrrum gítarleikari Willie Dixon, Sam Cooke og Ray Charles. Guitar Shorty er einn af virtustu og vinsælustu blúsmönnum heims, margverðlaunaður og hefur spilað með flestum stórstjörnum blústónlistarinnar frá upphafi, þ.á.m. mági sínum Jimi Hendrix, Muddy
Waters, Koko Taylor, Johnny Winter, Albert King, Junior Wells og James Cotton. Guitar Shorty kemur fram með The Blue Ice Band. Stone Stones og Marel Blues Project hita upp hljómsveitin er skipuð starfsmönnum Marels og hefur spilað víða um lönd á vegum fyrirtækisins.
Fimmtudag 28. mars, skírdag kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica
10 ára afmælishátíð Blúshátíðar í Reykjavík, allt það besta í íslenskum blús:Andrea Gylfa, Vinir Dóra, Ragnheiður Gröndal, Björn Thoroddssen, Sigurður Sigurðsson , Mike Pollock, Ásgeir Óskarsson, Langi Seli og Skuggarnir ,Sigurður Sigurðsson og fjöldi annarra lætur blúsljós sitt skína.
Fleiri atriði eiga eftir að bætast við
Blúsmiðinn
Handhafi Blúsmiðans hefur aðang að öllum þremur tónleikunum sem haldnir verða á Hilton Reykjavík Nordica. Takmarkað magn Blúsmiða er í boði.
Blúshátíð í Reykjavík hefst laugardaginn 23. mars, með Blúsdegi í miðborginni og uppákomum í Hörpu kl. 14 – 17. Tónleikar á Rósenberg um kvöldið. Urmull óvæntra atriða alla hátíðadagana.
Miðasala www.midi.is
Eins og undanfarin ár aðeins er tekin frá borð fyrir matargesti VOX. Veitingahúsið VOX á Hilton Reykjavík Nordica ætlar að bjóða uppá sérstakan matseðil í tilefni Blúshátiðar.Matargestir VOX fá frátekin borð á tónleikunum kl 20 um kvöldið.VOX restaurant / bistro – Hilton Reykjavik Nordica – Suðurlandsbraut 2
Sími: 444 5050 – vox@vox.is
http://www.reykjavik.nordica.hilton.com