Tag: #blúshátíð
-
Í dag 9. apríl var Blúshátíð í Reykjavík 2022 formlega sett.
Dagskráin hófst með því að Lúðrasveitin Svanur blúsaði niður Skólavörðustíginn og á eftir þeim komu félagar í Krúserklúbbnum á ansi flottum bílum. Fyrir utan búðina hjá Ófeigi gullsmið voru blústónleikar og forsmekkurinn af því sem koma skal á aðaltónleikum Blúshátíðar nk. miðvikudag.Fyrir þá sem vilja skoða dagskrána nánar og jafnvel kaupa sér miða er hægt að gera það hér: https://tix.is/is/event/12974/blushati-/ -
Blúshátíð í Reykjavík 2022 tryggðu þér miða á tix.is
Blúshátíð í Reykjavík. miðasala á tix.is tryggðu þér miða hér https://tix.is/is/event/12974/blushati-/
Blúshátíð í Reykjavík laugardaginn 9. apríl. Blúsdagur í miðborginni.
Þá leggur Blúshátíð Skólavörðustíginn undir sig. Skrúðganga verður frá Leifsstyttu kl. 14.00. Lúðrasveitin Svanur leikur nokkur lög og Krúser klúbburinn verður með glæsilega bílasýningu. Boðið verður upp á lifandi blús á Skólavörðustígnum frá klukkan 14.00.
Hilton Reykjavik Nordica 13. apríl
Bestu blúsarar landsins!
Blúshátíð í Reykjavík verður með breyttu sniði í ár. Einungis verða einir tónleikar í boði, sannkölluð tónlistarveisla þar sem allir bestu blúsarar landsins koma fram.
Söngkonurnar óviðjafnanlegu Andrea Gylfadóttir, Ragnheiður Gröndal og Stefanía Svavarsdóttir fremja blúsgaldur með Guðmundi Péturssyni, Halldóri Bragasyni, Óskari Loga Ágústssyni og Nick Jameson, þúsund þjala ólíkindatólinu Davíð Þór Jónssyni ásamt Róberti Þórhallssyni bassaleikara og trommuleikaranum taktfasta Ásgeiri Óskarsyni.
Á tónleikunum kemur einnig fram hljómsveitin Bláa höndin en hana skipa þeir Jakob Frímann Magnússon, Guðmundur Pétursson, Jón Ólafsson og Einar Scheving.
Eftir þessa mögnuðu íslensku blúsveislu verður Klúbbur Blúshátíðar starfræktur á Hilton Reykjavík Nordica. Þar heldur fjörið áfram fram eftir nóttu og ævintýri gerast þegar ólíkir tónlistarmenn hræra sannkallaðan blússeið.Eins og undanfarin ár aðeins er tekin frá sæti fyrir matargesti VOX. Veitingahúsið VOX á Hilton Reykjavík Nordica ætlar að bjóða uppá sérstakan matseðil í tilefni Blúshátiðar. Matargestir VOX fá frátekin sæti á tónleikunum kl 20 um kvöldið. VOX restaurant / bistro – Hilton Reykjavik Nordica – Suðurlandsbraut 2 Sími: 444 5050 – vox@vox.ishttp://www.vox.is/
-
Blúshátíð í Reykjavík á Hilton Reykjavík Nordica 2019
Blúsveislan á Hilton Reykjavík Nordica
Nú er komið að því! Fyrstu tónleikar Blúshátíðar í Reykjavík þriðjudagskvöldið og þeir lofa sannarlega góðu. Þá kemur Emil Arvidsson frá Svíþjóð og spilar stórskemmtilega blús eins og hann er þekktur fyrir. Við heyrum líka í blúsaðasta bandi Músíktilrauna og snillingunum Davíð Þór Jónssyni, Guðmundi Péturssyni og Þorleifi Gauki Davíðssyni sem flytja blúsbræðinginn Fantasy Overture.
Joe Louis Walker er goðsögn í lifanda lífi og aðal gestur Blúshátíðar í ár. Hann er af mörgum talinn besti blústónlistarmaður samtímans. Hann spilar miðvikudagskvöldið 17. apríl. Fyrir hlé bjóða Strákarnir hans Sævars upp á kraftmikla blúsveislu þar sem rokkskotinn blús verður fyrirferðarmikill.
Lokakvöld Ástsælasta blúshljómsveit landsmanna, Vinir Dóra heldur upp á 30 ára starfsafmæli sitt fimmtudaginn 18. apríl. Vinirnir bjóða til sín gestum og meðal þeirra eru Andra Gylfadóttir, Davíð Þór Jónsson, Þorleifur Gaukur Davíðsson, Rubin Pollock og Pétur Tyrfingsson. Þetta partý verður seint toppað. Fyrir hlé leika GGblús, þeir Guðmundur Jónsson og Guðmundur Gunnlaugsson. Uncle John Jr. hefur leik á þessu magnaða kvöldi.
Tónleikar Blúshátíðar eru á Hilton Reykjavík Nordica og þeir hefjast stundvíslega klukkan 20.00.
Miðasala er á midi.is og við dyrnar tónleikadagana frá kl 19 en þá opnar húsið. Hægt er að kaupa á stök kvöld eða Blúsmiðann sem gildir á öll kvöldin takmarkað magn Blúsmiða er í sölu.
Kaupa miða
Blúshátíð í Reykjavík hressir, bætir og kætir
-
Róbert Þórhallsson er heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur 2019
Róbert Þórhallsson er heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur 2019
Bassaleikarinn Róbert Þórhallsson var útnefndur heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur við setningu Blúshátíðar í dag, laugardaginn 13. apríl.
Róbert er einn af okkar allra bestu og eftirsóttustu rafbassaleikurum. Hann hefur verið órjúfanlegur hluti íslenska blússamfélagsins um árabil og hefur meðal annars spilað með húsbandinu, Blue Ice Band, á hverri einustu Blúshátíð frá árinu 2006. Þar hefur hann spilað með öllum erlendu stórstjörnunum sem hafa komið fram á hátíðinni og stjórnað samspilinu af smekkvísi og fagmennsku.
Róbert Þórhallsson er sprenglærður tónlistarmaður. Hann byrjaði ungur að blása í trompet í tónlistarskóla Húsavíkur en skipti yfir í bassann 15 ára gamall. Hann brautskráðist frá Tónlistarskóla FÍH árið 1997. Haustið 1998 hóf Róbert nám í Conservatorium van Amsterdam þar lauk hann kennaranámi og marstesnámi í bassaleik. Hann brautskráðist þaðan vorið 2003 með láði, fyrstur nemanda í Jass- og hryndeild skólans.Róbert Þórhallsson er verðugur heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur.
-
Blúshátíð klikkar ekki!
Blúshátíð klikkar ekki!
Á Blúshátíð í Reykjavík verða þrennir stórtónleikar með tónlistarmönnum á heimsmælikvarða.
Blúshátíð býður upp á Larry McCray sem hefur verið valinn besti blúsleikari Bandaríkjanna, hina kraftmiklu Lauru Chavez sem er einn besti blúsgítarleikari samtímans og söngkonuna Inu Forsman sem vakið hefur eftirtekt og aðdáun fyrir túlkun og kraftmikla rödd.
Einnig sýna bestu blúsmenn landsins sitt allra besta á hátíðinni og klúbburinn verður opinn fram eftir morgni.
Blúsmiðinn sem veitir aðgang að öllum þrennum tónleikunum kostar einungis 11.990 krónur. Á staka tónleika kostar aðeins 5.490.
-
Blús á heimsmælikvarða! Miðasala er á midi.is
Blús á heimsmælikvarða! Miðasala á midi.is hér
Á Blúshátíð í Reykjavík koma fram alþjóðlegar blússtjörnur og íslenskir snillingar sem gera dymbilvikuna að fjörugustu og skemmtilegustu viku ársins.Larry McCray, einn allra besti blúsari Bandaríkjanna er aðalgestur hátíðarinnar og gítarleikarinn Laura Chavez mætir loksins á Blúshátíð eftir nokkurra ára bið en hún er komin í úrvaldeild alþjóðlegra blúsara. Laura kemur með söngkonuna Inu Forsman sem er að gera allt vitlaust um þessar mundir.
Blúsmiðinn veitir aðgang að öllum stórtónleikum og er hugsaður fyrir þá sem vilja drekka í sig hvern tón á stóra sviði hátíðarinnar og upplifa galdurinn á blúsklúbbnum þegar hið fullkomna frelsi tekur við. Á klúbbnum er djammað fram undir morgun.
Blúshátíð í Reykjavík kemur bæði með vorið og gleðina.
Hér er Larry McCray að spila með Jools Holland
Blúshátíð í Reykjavík 27. til 29. mars.
Á Blúshátíð í Reykjavík 2018 verða þrennir stórtónleikar á Hilton Reykjavík Nordica í dymbilviku, á þriðjudags- miðvikudags- og fimmtudagskvöld:
Blúsmiðinn veitir aðgang að öllum þremur stórtónleikunum á Hilton Reykjavík Nordica. Tryggðu þér Blúsmiða.
Stórtónleikar þriðjudaginn 27. mars kl. 20.00.
Laura Chavez og Ina Forsman – Beggi Smári og Nick Jameson – Blúsaðasta band Músíktilrauna
Stórtónleikar miðvikudaginn 28. mars kl. 20.00.
Larry McCray og The Blue Ice band – Langi Seli og Skuggarnir – Lúðrasveitin SvanurStórtónleikar fimmtudaginn, 29. mars, kl. 20.00.
Lokakvöld.Íslenskur blús í hæsta gæðaflokki.
-
Miðasala á midi.is. Blúshátíð í Reykjavík 2018
Miðasala er hafin á midi.is hér https://midi.is/concerts/1/10385/Blushatid_2018
Blúshátíð í Reykjavík 27. til 29. mars.
Á Blúshátíð í Reykjavík 2018 verða þrennir stórtónleikar á Hilton Reykjavík Nordica í dymbilviku, á þriðjudags- miðvikudags- og fimmtudagskvöld:Blúsmiðinn
Blúsmiðinn veitir aðgang að öllum þremur stórtónleikunum á Hilton Reykjavík Nordica. Takmarkað magn í boði, fyrstir kaupa fyrstir fá.Stórtónleikar þriðjudaginn 27. mars kl. 20.00.
Laura Chavez og Ina Forsman – Beggi Smári og Nick Jameson – Blúsaðasta band MúsíktilraunaBlúshátíð í Reykjavík hefst með látum enda er engin logmolla í kringum Lauru Chavez og Inu Forsman, þvert á móti. Ina Forsman kom eins og hressandi hvirfilbylur inn í blúsheiminn og hefur frá fyrsta degi vakið eftirtekt og aðdáun fyrir túlkun, kraft og rödd sem þykir bæði vera undur mjúk og ansi hrjúf. Laura Chavez er frábær gítarleikari, sögð vera einn besti blúsgítarleikari samtímans og stendur fyllilega undir því, kraftmikil og ljóðræn í senn. Áhorfendur um allan heim hafa kolfallið fyrir spilagleði og líflegri sviðsframkomu þeirra.
Fyrir hlé ráða Beggi Smári og Nick Jameson ríkjum á stóra sviðinu ásamt Friðriki Júlíussyni á trommur Pétri Sigurðssyni á bassa. Á matseðlinum er kraftmikill blús, fjör og vænn skammtur af bráðsmitandi stemningu. Allra fyrst á sviðið verður blúsaðasta band Músíktilrauna 2018. Þetta er spennandi!
Stórtónleikar miðvikudaginn 28. mars kl. 20.00.
Larry McCray og The Blue Ice band – Langi Seli og Skuggarnir – Lúðrasveitin SvanurGítarleikarinn, söngvarinn og lagahöfundurinn Larry McCray hefur verið leiðandi í bandarískum blús síðustu 25 árin. Larry hefur verðskuldað verið valinn besti blúsleikari Bandaríkjanna og það verður sannkölluð upplifun að sjá hann á Blúshátíð. Strákarnir í The Blue Ice Band iða í skinninu eftir því að fá spila með þessum snillingi.
Langi Seli og töffararnir í Skuggunum trylla gesti hátíðarinnar með nýju efni og eldi smellum fyrir hlé en fyrst mun brassið ráða ríkjum. Já, Lúðrasveitin Svanur hitar fólk upp með sannkölluðum New Orleans bræðingi. Þetta er uppskrift að fjöri!
Stórtónleikar fimmtudaginn, 29. mars, kl. 20.00.
Íslenskur blús í hæsta gæðaflokkiÁ skírdagskvöld verður boðið upp á íslenska blúsveislu sem getur ekki klikkað. Fyrir hlé leiðir Tryggvi Hübner hljómsveit þar sem Haraldur Þorsteinsson er á bassa, Ásgeir Óskarsson á trommum og Magnús Jóhann á hljómborð. Flestir þeirra voru í hljómsveitinn EIK og nokkur lög þessarar goðsagnakenndu hljómsveitar munu heyrast á hátíðinni.
Eftir hlé bætast fleiri stjörnur í hópinn; Björgvin Gíslason, Sigurður Sigurðsson, Davíð Þór Jónsson, Guðmundur Pétursson, Óskar Logi, Stefanía Svavarsdóttir, Halldór Bragason, Róbert Þórhallsson og fleiri og fleiri. Á sviðinu verður rjóminn af íslenskum blústónlistarmönnum sem bjóða upp á blús af bestu sort. Þetta verður ekki betra!
Klúbbur Blúshátíðar verður opinn á Hilton Reykjavík Nordica eftir alla tónleikana og þar gerast undur og stórmerki. Reynsluboltar, ungliðar og frægir leynigestir hræra saman þjóðlegum íslenskum blús, Mississippi blús, rokki og öðrum skemmtilegheitum fyrir lífsglaða nátthrafna.
Blúshátíð í Reykjavík hefst laugardaginn 24. mars með Blúsdegi í miðborginni þar sem Blúshátíðin leggur Skólavörðustíginn undir sig. Við setningu hátíðarinnar verður tilkynnt um val á heiðursfélaga Blúsfélags Reykjavíkur 2018. Boðið verður upp á lifandi blús víða á Skólavörðustígnum frá klukkan 14.00 til 16.00. Kveikt verður upp í grillunum og boðið upp á kjúklingavængi og fleira.
Tónleikar á Borgarbókasafni kl. 16.00.
Facebook https://www.facebook.com/www.blues.isEins og undanfarin ár aðeins er tekin frá sæti fyrir matargesti VOX. Veitingahúsið VOX á Hilton Reykjavík Nordica ætlar að bjóða uppá sérstakan matseðil í tilefni Blúshátiðar. Matargestir VOX fá frátekin sæti á tónleikunum kl 20 um kvöldið. VOX restaurant / bistro – Hilton Reykjavik Nordica – Suðurlandsbraut 2 Sími: 444 5050 – vox@vox.is http://www.vox.is/
Hátíðin er styrkt af Reykjavíkurborg.